Fjölmargir Mosfellingar opna heimili sín, garða og götur fyrir gestum um bæjarhátíðina Í túninu heima og ljóst er að þátttaka bæjarbúa verður með allra mesta móti í ár.
Athygli er vakin á leiðréttingu vegna tónleika Slagarasveitarinnar í Vogatungu laugardaginn 29. ágúst kl. 17–18. Í auglýsingu Mosfellsbæjar misritaðist heimilisfangið sem Vogatunga 413 en hið rétta er:
Vogatunga 13 – Mosfellingar bjóða heim
Slagarasveitin slær þar upp tónleikum með frumsömdu íslensku poppi, rokki og country, stundum með þjóðlegu ívafi. Allir eru velkomnir.
Það er langt frá því eini viðburðurinn sem verður til fyrir tilstilli bæjarbúa. Víða um Mosfellsbæ verður boðið heim í garðtónleika, samveru og aðra viðburði þar sem heimafólk leggur sitt af mörkum til hátíðarinnar.
Götugrillin verða sömuleiðis áberandi en 66 umsóknir bárust um götugrill í ár. Á laugardagskvöld má því búast við lífi og fjöri í fjölmörgum hverfum þegar nágrannar safnast saman við grillið í skreyttum götum bæjarins.
Í túninu heima hefur frá upphafi verið hugsuð sem þátttökuhátíð þar sem íbúar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir móta dagskrána saman. Það sést vel í ár þegar fjöldi smærri viðburða sprettur upp víðs vegar um bæinn.
Mosfellingar eru því hvattir til að skoða dagskrána vel, rölta á milli hverfa og kíkja í heimsókn til nágrannanna.



