Mánudagur, 16. nóvember 2026
Forsíða
Skólar og börn

Tækniskólinn er meira en velkominn í Mosfellsbæ

1 mín. lestur
Facebook

Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri segir Mosfellsbæ tilbúinn að taka á móti Tækniskólanum í ljósi þess að skólinn mun ekki hefja uppbyggingu í Hafnarfirði. Að sögn Hilmars hefur Mosfellsbær mikið svigrúm til uppbyggingar og mögulegt væri að bregðast hratt við ef slíkt verkefni kæmi til skoðunar. Hann segir bæinn vel staðsettan, með nægt landrými og góða möguleika til framtíðaruppbyggingar. „Tækniskólinn væri afar velkominn í Mosfellsbæ. Hér er nægt pláss og við höfum alla burði til að bregðast hratt við,“ segir Hilmar.

Birt í Mosfellingi 17. september 2026.