Snocross hefur notið vaxandi vinsælda hér á landi á undanförnum árum,
sérstaklega á Norðurlandi þar sem snjóaðstæður eru hvað bestar. Ökumenn keppa á snjósleðum á krefjandi brautum þar sem hraði, stjórn og stökkhæfni skipta sköpum.
Mosfellingurinn Bergrún Fönn Vestfjörð Alexandersdóttir gerði sér lítið fyrir og landaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í kvennaflokki í snocrossi á Ólafsfirði í apríl síðastliðnum. Hún varð þar með fyrsti meðlimur mótoríþróttafélagsins Motomos í Mosfellsbæ til að verða Íslandsmeistari í greininni.
Bergrún Fönn fæddist á Akureyri 30. september 2008. Foreldrar hennar eru Árný Elva Ásgrímsdóttir, ritari í Húsaskóla, og Alexander Vestfjörð Kárason, eigandi Stálsmiðjunnar Kofra.
Bræður Bergrúnar eru Ásgrímur Örn, f. 2005, og Bergvin Snær, f. 2006.
Yndislegt að alast hér upp
„Ég ólst upp í Mosfellsdal en fjölskyldan flutti þangað þegar ég var fimm ára og þar búum við enn í dag. Það var yndislegt að alast upp í þessu friðsæla og fallega umhverfi þar sem maður hafði mikið frelsi til að leika sér úti í náttúrunni.
Ég á margar góðar æskuminningar en mér fannst alltaf sérstaklega spennandi að fá að sitja í fanginu á pabba undir stýri, fá að keyra með honum og skipta um gír. Pabbi átti nefnilega stóran Suburban-jeppa og það fannst mér nú ekki leiðinlegt. Ég hef líka keyrt fjórhjól hér í Dalnum alveg frá því ég man eftir mér.
Ég gekk í Varmárskóla til loka 7. bekkjar en flutti mig síðar yfir í Helgafellsskóla. Samhliða námi hef ég starfað hjá Sambíóunum í Egilshöll.”
Fetar í fótspor föður síns
Frá unga aldri hefur Bergrún Fönn verið umkringd bílum, fjórhjólum og snjósleðum enda hafa vélknúin tæki lengi verið stór hluti af lífi fjölskyldunnar. Faðir hennar, Alexander, ávallt kallaður Lexi, hefur oft verið nefndur guðfaðir jaðaríþróttanna enda einn sá öflugasti í þeim greinum.
Það kom því fáum á óvart þegar Bergrún Fönn fetaði í fótspor föður síns og hóf að keppa í akstursíþróttum. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún sýnt mikið sjálfstæði og metnað og var einungis 15 ára þegar hún tók þátt í sinni fyrstu rallycross-keppni. Hún segir fyrstu skrefin í íþróttinni hafa verið bæði spennandi og lærdómsrík. Þótt markmiðið sé alltaf að ná góðum árangri leggur hún jafnframt áherslu á að njóta þess sem hún er að gera.
Finnur fyrir spennu og eftirvæntingu
„Ég hef alltaf verið hrifin af vélknúnum ökutækjum, bílum, fjórhjólum og snjósleðum og þá sérstaklega kraftinum sem þeim fylgir. Það er ákveðin tilfinning sem fylgir því að vera á ráslínunni rétt áður en keppni hefst. Þá finn ég fyrir spennu og mikilli eftirvæntingu. Þegar ljósin kvikna hverfur allt annað úr huganum og ég einbeiti mér eingöngu að akstrinum og brautinni fram undan.”
Bergrún hafnaði í þriðja sæti í unglingaflokki á Bíladögum á Akureyri árið 2025 og tryggði sér nýverið annað sætið í 1400 cc flokki á nýjum bíl í keppni á vegum Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar.
„Fjölskylda mín á stóran þátt í þeim árangri sem ég hef náð. Hún hefur fylgt mér í keppnir, aðstoðað mig við undirbúning og alltaf verið til staðar þegar á hefur þurft að halda. Oft þarf að leggja á sig langar ferðir og verja miklum tíma í tengslum við keppnirnar. Ég væri ekki þar sem ég er í dag án stuðnings hennar.”
Málmsuðan áhugaverð
Bergrún Fönn hóf nám í bifvélavirkjun við Borgarholtsskóla en skipti síðar um námsleið og stundar nú vélstjórnarnám við Tækniskólann. Hún segir verklega þátt námsins höfða sérstaklega til sín og nefnir málmsuðu sem einn áhugaverðasta hlutann, þar sem handverk og tæknivinna fari saman við fræðilega þekkingu. Mikil áhersla sé lögð á nákvæmni, úthald og góða verklega færni.
„Ég er enn að prófa mig áfram í náminu. Það er skemmtilegt að takast á við krefjandi verkefni og maður lærir stöðugt eitthvað nýtt. Ég er ánægð með val mitt á vélstjórninni og spennt að sjá hvert það leiðir mig,” segir Bergrún Fönn og brosir.
Eitt leiddi af öðru
Bergrún Fönn tók þátt í sinni fyrstu snocross-keppni á Egilsstöðum árið 2024. Keppt var á snjósleðum á sérútbúnum brautum þar sem keppendur stukku yfir ýmsar hindranir á miklum hraða. Eftir keppnina var hún fullviss um að þetta vildi hún gera aftur. Ári síðar sneri hún aftur á keppnisbrautina og stóð uppi sem Íslandsmeistari.
Ég spyr Bergrúnu hvernig það hafi komið til að hún fór að keppa í snocrossi. „Pabbi var búinn að vera í snocrossi í langan tíma og varð margfaldur Íslandsmeistari en færði sig svo yfir í rallycrossið. Ég hef fylgst með honum í gegnum árin og eitt leiddi svo af öðru, ég vildi fá að prófa sjálf og taka þátt,” segir Bergrún Fönn og brosir. Þetta hefur auðvitað lengi verið karllæg grein en ég læt það ekki stoppa mig. Ég á heima þarna alveg eins og strákarnir, aðalatriðið er áhuginn og að leggja sig fram við það sem maður er að gera.
Aðspurð hvað það sé sem heilli hana mest við snocrossið segir Bergrún Fönn: „Ætli það sé ekki það að það eru engar tvær keppnir eins. Það er stór partur af því sem gerir þetta svona skemmtilegt. Auðvitað skiptir höfuðmáli að hafa góða stjórn á sleðanum og geta brugðist hratt við aðstæðum á brautinni.”
Íslandsmeistari í snocrossi
Bergrún Fönn tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki í snocrossi eftir farsælt keppnistímabil í Íslandsmótaröðinni. Lokakeppnin fór fram á Ólafsfirði í apríl síðastliðnum. Bergrún var áberandi í mótinu og sýndi stöðug og sterk úrslit allt tímabilið sem skiluðu henni titlinum að lokum.
Framtíðarmarkmið Bergrúnar eru skýr. Hún stefnir á að halda áfram að keppa, afla sér meiri reynslu og bæta sig með hverri keppni. Með tvo Íslandsmeistaratitla í farteskinu og mikla ástríðu fyrir mótorsporti virðist framtíðin sannarlega björt.







